|
|
29.06.2008 21:39:28 / huldamagna
Er þetta ekki bara ótrúlegt? Það er snjór í fjöllum og það rignir og ekki meira en 3-5 stiga hiti úti og það er að koma júlí??!! Ég bara spyr...
En tíminn líður svo hratt og nú er bara tvær vikur í brúðkaupið hennar mömmu. Allt á fullu og við vonum öll eftir miklum breytingum hjá veðurguðunum því að veislan á að vera utandyra... En þetta reddast allt eins og alltaf... Mamma og Gunni fengu svo eina brúðkaupsgjöfina svona fyrirfram svo að þau gætu notað hana í veislunni en þau fengu þetta stóra og flotta grill að gjöf frá næstum bara öllum í fjölskyldunni. Þið getið kíkt á myndirnar!
Nú er að mestu bara vinna á næstu grösum en í ágúst verður frí og gaman hjá mér Mari vinkona frá Finnlandi kemur í heimsókn og við ætlum að ferðast saman um Vestfirðina. Hef aldrei komið þangað sjálf, ekki svo ég muni eftir því allavega. Þ.a. ég hlakka mikið til þess.
Var fyrir sunnan um daginn, fór á James Blunt tónleika og það var mjög gaman. Íslendingar eru samt svo dannaðir á tónleikum... veit ekki alveg hvað ég á að halda um það... Það var æðislega gaman í borginni, gott veður og frábært að eyða tímanum með vinkonu minni henni Sæunni. Tókum bara útlöndin á þetta!
En hvað er að frétta frá ykkur þarna úti??
Knús og koss, Hulda
»
21.03.2008 21:38:13 / huldamagna
Jæja þá er mars nærri búinn og apríl nálgast óðum sem þýðir að það styttist í ferðina til Barcelona Get varla beðið!!!
Fór í leikhús í gær og sá Fló á skinni, það var nú algjört bull en mjög fyndið Svo var dagurinn í dag svo ofsalega fallegur ég held að allur landinn hafi verið í fjallinu og skíða niður brekkurnar í sólinni, nema auðvitað fólk eins og ég sem kunna ekkert á skíði eða bretti....
Síðan eru þeir sem eru bara heima undir sæng sárlasnir, kvef, hiti og hausverkur...ekki gaman hjá þeim. Pabbi gamli er lasinn og hann hefur starað út um gluggann í allan dag og horft á fólkið skemmta sér á vélsleðum og skíðum... alveg að missa sig, svona á milli hóstakastanna, greyið
En svo loksins kom ég mér að því að setja inn nýjar myndir. Það eru nokkrar myndir frá því þegar við fórum á árshátíð Akureyrarbæjar. Gull og glamúr var þemað og Páll Óskar spilaði á ballinu. Það var rosalega gaman hjá okkur. Palli rules!!
Vonandi fá allir risastór páskaegg á sunnudaginn og góðan málshátt með 
»
03.02.2008 17:24:57 / huldamagna
Vá það er langt síðan síðast! En þetta hefur bara verið ágætt. Jólin voru góð og gamlárskvöld var bara mjög gott hjá okkur. Strákarnir misstu sig AÐEINS og keyptu alveg heilan helling af flugeldum. Það var bara show fyrir allt hverfið, rosalega gaman hjá okkur eins og þið sjáið á myndunum. Já það er loksins komnar nýjar myndir inn. Biðst afsökunar á því hvað ég hef verið löt að setja inn myndir undan farið.
Nú er það bara vetur hjá okkur, svona snjómagn hef ég ekki séð síðan 1995 að ég held. En græni drekinn minn hefur bara staðið sig með mikilli prýði. Þrátt fyrir háan aldur. Þó það væri nú örugglega gaman að eiga stóran jeppa í svona færð....
Látið heyra í ykkur krakkar mínir
»
19.12.2007 00:35:56 / huldamagna
Nú nálgast jólin óðum og ég hef allt til, eða svo til  Æðislega gaman að vera búin að þessu öllu. Ætla bara að njóta þess að vera til og....vinna!!!! En ég verð samt hjá mömmu í jólasteikina það er mjög gott. Hún er komin heim og er á batavegi, takk og lof fyrir það! Hún er búin að leggja af og orðin voða flott,,,, nei en hún getur alveg borðað það sem hún vill um jólin án þess að hafa áhyggjur af þyngdinni. (maður verður að líta á björtu hliðarnar).
Er að hugsa um að baka kleinur og soðibrauð með mömmu og Gullu systir á föstudaginn, hef ekki bakað neinar smákökur (ég mundi enda á því að borða þær alllar sjálf annars, aarrrggg og ég má ekki við því!!!)
Get ekki beðið eftir því að fara út á lífið annan í jólum, það er alltaf gaman að hitta allt fólkið sem er í bænum þá. Og vonandi koma vinir mínir frá borginni til að skemmta sér með mér! Og svo auðvitað verður brjálað stuð um áramótin! Kannski ekki alveg eins mikið og um síðustu áramót ( vorum ein heima, ég Gulla og Hemmi) Erum enn að finna drasl úr sprengjum sem sprengdar voru inni í stofu á síðasta ári!!! Takk Pétur, gleymi því ekki!
Vonandi gengur jólaundirbúningur vel hjá ykkur öllum. Það er nú enn 5 dagar til jóla 
Gleðileg Jól elskurnar mínar!
Love and kisses to you all
»
29.11.2007 19:48:31 / huldamagna
Heyrðu nú mig! Ég hlýt að vera orðin hundgömul því mér finnst stöðugt eins og tíminn sé að fljúga í burtu frá mér... Þetta er eins og gamla fólkið sagði alltaf...árin verða bara styttri og styttri. Wow! Jólin eru bara 2 fríhelgar í burtu og ég er ekki búin að gera neitt fyrir jólin. Er að fá stress kast bráðum...
Tókst nú í dag að kaupa jólagjafirnar sem fara til útlanda, nú er bara að pakka þeim inn (var að fatta að ég gleymdi að kaupa pappír, AAAARRRGGGGGG!!!!!) og senda þær. Hversu mikil auli getur maður verið (óþarfi að svara þessu). Er að vinna í því að koma upp jólaljósum í íbúðinni enda veitir ekki af meiri hlýju í skammdeginu. Ég get svarið það að það er ekki meira en nokkurra tíma dagsljós svona á milli kl.12 og 14.
En leiðinlegri fréttir eru það að hún elsku mamma mín er á sjúkrahúsinu og líður frekar illa. Við vonum nú samt að hún jafni sig sem fyrst því fjölskyldan hefur ákveðið að fara í laufabrauðsbaksturinn 9.des. Og hún verður náttúrulega að vera með og segja okkur til. Við elskum þig mamma!
Ég vona að allir hafi það sem best og séu ekki að drepa sig á stressi. Verið glöð og látið heyra í ykkur
»
07.11.2007 19:30:04 / huldamagna
Já enn og aftur er tími breytinga hér. Guðlaug systir mín var að trúlofast kærasta sínum Kidda- til hamingju bæði tvö. og nú eru þau flutt í eigin litla íbúð á brekkunni. Hér sit ég nú ein í mínu koti og er enn að venjast þögninni og frelsinu... 
En það er miðvikudagur og ég sit og borða og horfi á fréttirnar... hörmulegar fréttir frá Finnlandi.!! Hvað er að fólki?
Þessi bær er rétt hjá Helsinki þar sem ég bjó. Mjög óhugnalegt.
En sem sagt miðvikudagur þýðir Greys Anatomy byrjar bráðlega!!! Geggjað, get ekki fengið nóg af honum...:-)
Kvittið dúllurnar, alltaf gaman að heyra í ykkur
»
02.11.2007 18:33:13 / huldamagna
Jæja loksins eftir 2 helgar í vinnunni þá á ég frí þessa helgi. Mjög gott!!!
Hemmi bróðir kom kl.15 og vakti mig eftir næturvakt, bara gott mál það. Hann kom með bjór í hendi, kominn vel í það þá þegar... en svona á að fara að þessu. Alltaf gaman að vakna við svona hressa menn! 
Núna er maturinn að verða tilbúinn og við erum bara hérna saman að syngja Singstar af öllu. Alveg ótrúlegt hvað þetta er gaman...  Allir ættu að syngja með....
»
07.09.2007 18:39:18 / huldamagna
Já þetta er bara allt gott... er að digga nýju íbúðina alveg í tætlur og er alltaf að pæla í hvað maður ætti að gera næst en ætli ég reyni ekki bara að taka því nokkuð rólega það sem eftir er ársins. En það er samt alltaf hægt að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera hérna á Íslandi...er það ekki???
Mamma og Gunni eru á Tenerife í hitanum og hótelið er víst alveg geggjað! Vonandi koma þau sólbrún og sæl tilbaka... Væri svo sem alveg tilbúin að vera með þeim þar akkúrat núna...
Er að fara suður í næstu viku með Gullu systir. Þarf aðeins að komast í búðir og kaupa föt og sjá nýtt fólk. Það verður örugglega gaman...
Hey þetta er fyndið, eftir að ég kom frá Guate þá er maður stöðugt að heyra spænsku alls staðar.... í lögum, bíómyndum og ég veit ekki hvað. Tók aldrei eftir þessu áður... Og svo fann ég 500 kr!!!
Annars á leið á næturvakt í kvöld, 12klst vaktir um helgina, þ.a. ekkert gaman um helgina. Vonandi skemmtið þið ykkur vel, þið sem hafið frí yfir helgina. Skál!
»
14.08.2007 18:23:34 / huldamagna
Sæunn vinkona kom í heimsókn um helgina. Við skemmtum okkur
rosalega vel, bara að kjafta saman og skemmta okkur. En á
laugardaginn fórum við í heimsókn til Dalvíkur á Fiskidaginn, þetta
var í fyrsta skipti fyrir okkur báðar og það var alveg rosalega
gaman. Alveg fullt af fólki og mikið um að vera. Við stóðum í röð í
meira en 30 mín hjá Friðrik 5 og fengum alveg hrottalega góðan mat.
Mæli með þessu! Ætla alveg örugglega að fara í fiskisúpu á næsta
ári.... Tók nokkrar myndir...kíkið á þær
»
14.08.2007 18:05:45 / huldamagna
Við fórum til eyja á miðvikudaginn...dagurinn byrjaði ekki eins og
planað var. Þurftum að skipta um bíla og láta gera við dekk og svo
framvegis en ferðin gekk svo vel að lokum. Systkinin hress öll
saman í bíl, Gulla, Hemmi, Jón og ég. Mættum á Þorlákshöfn og
auðvitað var opnað fyrsta bjórinn á meðan við biðum eftri því að
komast af stað. Veðrið var gullfallegt þegar við nálguðumst
eyjarnar þannig að móttökurnar voru mjög góðar. Fimmtudagurinn var
aftur sólskin og hlýtt... Gengum um bæinn og fengum okkur svo bjór
og sátum úti og nutum útsýinisins...  Gerðum okkur svo klár fyrir
"húkkaraballið". WOW!!! Það var smá overkill, meðalaldur 14-18
ára... Hjálp. Við ætluðum síðan bara að labba í bæinn og fara á krá
en heldurðu að það hafi ekki byrjað að rigna eins og hellt væri úr
fötu á leiðinni... urðum hundvot á 2 sekúndum. Hringdum í
bjargvættinn Gunna til að ná í okkur á miðri leið  Á föstudeginum
byrjaði alvaran! Ásta Margrét og Co mættu til að tjalda við hlið
bústaðsins sem við vorum í og það var nú bara mjög áhugavert að
horfa á þau setja upp tjaldið þar sem það var nú bara ansi hvasst
akkúrat þá... Tók smá tíma en þeim tókst það að lokum. Við
grilluðum um kvöldið og svo var lagt leið sína niður í dal... Sátum
svo í brekkunni og horfðum á margar góðar hljómsveitir og auðvitað
var sungið hástöfum með!  Þetta er alveg einstök tilfinning að
sitja þarna meðal allra í brekkunni og drekka í sig
stemmninguna...og bjór auðvitað! Maður tók ekki eftir því þó að það
var orðið ansi svalt um næturnar. Þetta ættu alllir að upplifa alla
vega einu sinni!!! Það var sem sagt drukkið og sungið mikið alla
helgina. Farið í heimsókn í hvítu tjöldin  Gulla fékk meira að
segja flatbrauð hjá Árna Johnsen þegar við vorum að leita að einu
sérstöku tjaldi.... Allir virtust vera á sömu nótunum...að skemmta
sér vel og lengi. Ég tók ekki eftir neinum látum nema þegar löggan
fjarlægði einn strák í skotapilsi fyrir að sýna sína "privat" hluti
 Brekkusöngurinn á sunnudeginum var nú alveg frábær! Brekkan var
alveg full af fólki og ALLIR sungu með! Sem var nú gott því hann
Árni Johnsen kann EKKI að syngja eða að spila á gítar! En þetta var
alveg rosalegt stuð.... Verð nú að viðurkenna að ég var alveg búin
að fá nóg af bjór á sunnudeginum en sem betur fer var annað til
boða  Mánudagurinn var svo bara letidagur... það lágu allir bara
fyrir og tóku því rólega. Svo var þetta bara allt búið.... En ég
vil þakka fyrir góðar móttökur og frábæra gestrisni. Veðurguðirnir
voru okkur hliðhollir og þetta hefði bara ekki getað veri betri
þjóðhátíð.... Ég mun alveg örugglega fara aftur og þá vonandi þú
líka  Kíkið á myndirnar!!!!
»
31.07.2007 12:20:17 / huldamagna
Á morgun leggjum við í hann og höldum leið okkar suður með bílinn
fullann af bjór og hlýjum fötum... Því við erum að fara á Þjóðhátíð
í Eyjum! Það verður alveg örugglega gaman hjá okkur því öll
fjölskyldan fer saman, Mamma, Gunni, Gulla, Hemmi, Jón Elvar og ég
 Þó er spáin kannski alveg sú besta en...stormur og rigning á
föstudaginn en við gistum í bústað þannig að við getum alltaf farið
inn og hlýjað okkur. Er að reyna að pakka fyrir ferðina núna, við
þurfum að passa okkur á því að taka ekki allt of mikið með okkur,
því bjórinn tekur mesta plássið... Við Gulla fórum í ríkið á
laugardaginn og fórum út með 6 kassa af bjór og 2 flöskur. Vorum
sko fljótar að koma dótinnu fyrir í bílnum  Gleðilega Þjóðhátíð
Öll Sömun, Heyrumst PARTY ON!
»
25.06.2007 14:47:02 / huldamagna
Það á að heita sumar núna en við þjáumst af norðanvindi sem á best
heima yfir veturinn. Ég get svarið það að hann lyktaði eins og
vetur síðasta laugardag og hann er svo kaldur...í gær var logn og
bara ágætlega heitt úti þó að það væri skýjað. Ég er að vinna í
íbúðarmálunum...er búin í raun að kaupa mér raðhúsíbúð í
Rimasíðunni!!!  Er bara að bíða eftri svari frá láninu og svo
vonandi flyt ég inn í Júlí! Geggjað  Auðvitað kemur Gulla systir
með, er með sér herbergi og allt. Gott að fá smá leigu svona til að
byrja með. Þetta er rosalega spennandi, ég er stöðugt að plana og
láta mig dreyma um hvernig ég ætla að gera íbúðina upp, því hún
þarf á því að halda greyið. En hún hefur góða möguleika og ég hef
þar ágætan garð og stóran pall í vestur...sól mest allan daginn,
mjög gott! En áður en ég flyt inn ætla ég að mála alla íbúðina og
er ég nú þegar búin að ákveða litasamsetninguna. Get ekki beðið!
Set inn myndir þegar ég er byrjuð á þessu. Um daginn fór ég með
vinkonu minni útí sveit að hjálpa henni að týna æðadún úr hreiðrum
við ströndina. Tók auðvitað myndavélina með mér til að æfa mig að
taka myndir eins og ég er búin að læra á myndavélanámskeiðinu sem
ég fór í um daginn. Mjög gaman það! Lærði alveg helling og sé hvað
ég hef verið vitlaus hingað til með myndavélina. Hvaða gagn er að
kaupa svona fína og flotta vél ef maður kann svo ekki að nota
hana?!!! En ég ætla setja inn nokkrar myndir frá sveitinni,
endilega skoðið það. Annars er ég á leiðinni í vinnunna bráðlega,
var voða dugleg í morgun og fór í ræktina og ljós! Og nú líður mér
bara vel. Sólin skín en þessi norðanvindur blæs alveg á fullu þ.a.
það er ansi kallt. Lífið er gott! Heyrumst krakkar!
»
13.06.2007 01:54:15 / huldamagna
Laugardagurinn var sólríkur og fallegur. Ég keyrði á mínum fallega
og góða bíl (græni drekinn) í Aðaldalinn sem skartaði sínu fagrasta
í tilefni dagsins... Innan skamms var öll fjölskyldan komin á
staðinn eða sá hluti sem er á Íslandi og kökur voru bornar fram og
heitir réttir...nammi namm!!! Eftir að allir voru búnir að fá sér
smá í gogginn tóku skemmtiatriðin við. Gulla, Ásta, Andrea og Ásdís
sungu og spiluðu nokkur af uppáhalds lögum hans afa og var það mjög
áhrifaríkt fyrir alla. Þegar kökurnar voru búnar að sjatla aðeins
var byrjað að grillla kvöldmatinn og fólk byrjaði að fá sér smá að
drekka og settust margir út á pall og nutu góða veðursins, auðvitað
eftir að búið var að sjá um beljurnar góðu  Grillmaturinn fór
ljúflega niður sérstaklega með góðu rauðvíni og allir voru sáttir
og kátir...Það byrjaði að kólna þ.a. krakkarnir sáu sér þann leik
bestan að fara í pottinn og síðar fór fullorðna fólkið líka...mjög
góður pottur! Um kvöldið var síðan komið saman í stofunni með gítar
og sungið af mikilli list.... Ég vil bara þakka fyrir frábæra
gestrisni í sveitinni. ég veit núna að sveit þarf ekki á kindum að
halda ha, ha, ha... Endilega skoðið myndirnar frá afmælinu og
Sonja...ég bara varð að setja myndina inn. Hún er svo flott!
»
24.05.2007 14:43:23 / huldamagna
Jæja vinnan byrjuð á fullu og maður er fallin í rútínuna eins og
ekkert sé... En það er líka bara gott að vera gott að vera komin
heim. nema ég hef nú aðeins verið að kvarta yfir kuldanum hérna en
í dag er rigningar slidda og hvasst! Æðislegt !!!! Ekkert
skemmtilegt að segja svo sem....bíð bara eftir sumrinu það hlýtur
að fara að koma. Heyrðu, víst hef ég eitthvað að segja. Ég fékk þá
flugu í höfuðið að fara að skoða íbúðir og kannski að kaupa mér ef
ég skyldi nú finna eitthvað skemmtilegt og ódýrt! Læt vita ef ég
geri eitthvað áhugavert með það. Er bara að skoða sem stendur. Jæja
ætli ég komi mér ekki af stað og fari út í þetta helvíti þarna
úti.... sá frétt um daginn um nýja hátækni regnhlíf sem komin er á
markaðinn. Regnhlíf með síma, GPS, sjónvarpi og ég veit ekki hvað.
En hún er nú ónothæf hér á Íslandi, allt of hvasst!!!! Heyrumst!
»
14.05.2007 12:19:22 / huldamagna
Við fórum frá Guate þann 7.mai gistum eina nótt í New York og áttum
heilan dag niðri í Manhattan.Við fórum í Apple búð og urðum alveg
vitlausar. Ég keypti mér tölvu og fleira!!! Mjög ánægð með þau
innkaupin. Síðan lentum við hér á landi kl.6 þann 9.mai. Ískallt
hérna ef þið hafið ekki tekið eftir þvi! Hittum Birnu vinkonu
hennar Gullu í Rkv, hún bauð okkur í kaffi eftir að hún var búin að
jafna sig á shjokkinu. Tókum svo flugið norður kl11.15 og vorum
komnar heim til mömmu kl.12.30. Jón Elvar bróðir opnaði dyrnar og
hann þekkti okkur ekki í fyrstu. Við náðum mömmu inn á klósetti að
þurrka á sér hárið...hún fékk nærri því kast þegar hún sá okkur...
Við notuðum þennan fyrsta dag til að hrekkja sem flesta og við
fengum alveg ótrúlegustu viðbrögð. Nú er helgin liðin. Maður er
svona að ná sér eftir jetlag-ið og tímamismuninn. Hversdagsleikinn
er að ná manni... Byrja að vinna í dag eftir nokkra tíma. Kveðja
frá kuldanum fyrir norðan
»
Síður: 1 2 3 4
|
|